07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í B-deild Alþingistíðinda. (1310)

64. mál, Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég tala hér fyrir nái. á þskj. 174 um frv. til l. um breytingu á lögum um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins nr. 72 28. maí 1969, með síðari breytingum.

Sjútvn. ræddi þetta frv. á fundi sínum 6. des. og var sammála um að mæla með samþykkt þess óbreytts. Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Garðar Sigurðsson, Björn Dagbjartsson, Friðrik Sophusson, Gunnar G. Schram, Guðmundur Einarsson og Ingvar Gíslason.