14.12.1983
Neðri deild: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (1546)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég mun ekki tefja málið lengi. Mér fannst þó rétt að fram kæmi afstaða Kvennalistans í þessu mikilsverða máli. Við gagnrýnum það harðlega að jafnstórt og mikilvægt mál skuli koma fram á þessum tíma og vera ætlast til afgreiðslu þess á örfáum dögum. Það eru svo mörg mikilvæg mál á ferðinni og ákaflega erfitt að kynna sér þau nægilega vel á svo skömmum tíma.
Það má margt gott segja um till. sem fram koma í þessu frv., enda eru þær byggðar á tillögum þeirra sem best eiga að þekkja til. Kvennalistinn telur þetta frv. sannarlega spor í rétta átt, en hefur þó vissar efasemdir um einstök atriði.
Það er engan veginn ljóst af þessu frv. hvernig framkvæmd málsins verður. Þar er allt lagt í hendur eins manns. Það er hins vegar enginn vafi á að stjórnunar er þörf. Það verður ekki komist hjá því að setja reglur um fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi okkar. Kvótaskiptingin er sennilega eini möguleikinn sem fyrir hendi er til að ná tökum á sókninni í einstaka fiskstofna og vinna gegn ofveiði eins og nú er komið málum. Kvótaskipting hefur óneitanlega ýmsa kosti. Vil ég þá fyrstan telja þann kost að slíkt fyrirkomulag er líklegt til að stuðla að betri meðferð fiskaflans, þar sem magnið er gefinn hlutur en gæðin ráða tekjunum. Það hvetur sjómenn til að fara betur með aflann og fá meira fyrir hann. Það er einnig mikilsverður kostur að með þessu fyrirkomulagi ætti að vera unnt að koma á betri samræmingu í veiðum og vinnslu og tilkostnaður útgerða gæti orðið minni þegar kapphlaupið er úr sögunni.
Þau rök hafa lengstum verið notuð gegn kvótakerfinu að það hvetji til meðalmennsku, aflaklærnar missi alla löngun til að standa sig, kappsemin og happdrættisstemmningin hverfi af miðunum. Við þeim ókosti er lítið að gera eins og málum er nú háttað. Það er ekki hægt að efna til kapphlaups um það aflamagn sem um er að ræða. Fiskiskipaflotinn er einfaldlega orðinn of stór. Skammsýnin og gróðafíknin hefna sín.
Að lokum vildi ég nefna það, sem mikið hefur verið gagnrýnt hér og við erum sammála þeirri gagnrýni, að sjútvrh. sé gefið of mikið vald með þessum till. Það er ekki hægt að öfunda hann af því valdi sem honum er ætlað og rétt að draga úr því. Og það verður að tryggja að farið verði að till. Hafrannsóknastofnunar þótt niðurstöður hennar hafi ekki alltaf reynst 100% réttar. Þær eru þó betri, held ég, en óskhyggja hagsmunaaðila.
Að lokum vil ég nefna að mér finnst mjög skynsamlegt að þetta sé aðeins til eins árs. Það verður þá hægt að endurskoða það með tilliti til reynslu.