14.12.1983
Neðri deild: 25. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1852 í B-deild Alþingistíðinda. (1549)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Við lok þessarar umr. vil ég aðeins árétta það sem hér var sagt áður, að það hafa komið hér fram fjölmargar spurningar við umr. sem hæstv. ráðh. vegna takmarkaðs tíma svaraði ekki. Í trausti þess að þeim verði öllum svarað ítarlega og sómasamlega við 2. umr. er rétt að hagnýta sér ekki þann rétt sem mögulegur er skv. þingsköpum til að halda þessari umr. áfram. Treystum við því þá, hv. þm., að við upphaf 2. umr. um þetta mál muni hæstv. ráðh. gefa hv. þd. skýrslu sem í verða svör við þeim spurningum.