15.12.1983
Neðri deild: 26. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1876 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Forseti tekur á margan hátt undir þá ádrepu sem hv. 10. landsk. þm. hefur hér haldið. Ég vil í framhaldi af þessu minna hv. þdm. á að þeim ber að vera hér þegar fundartími hefst samkv. auglýstri dagskrá. Ég legg þunga á að ekki komi fyrir aftur að svo þurfi til að takast að naumast sé hægt að setja fund á réttum þingfundartíma.