15.12.1983
Neðri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1890 í B-deild Alþingistíðinda. (1611)
Umræður utan dagskrár
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta.
Ég vildi ekki skorast undan því að svara hæstv. dómsmrh. Hann beindi þeirri spurningu til mín, hvers vegna ég hefði gert athugasemd við að þetta úthlaup hefði ekki beinst að Hótel Sögu og vék að því að um það hótel hefðu verið ýmsar sögusagnir á kreiki. Ástæða þess að ég nefndi það er sú, hæstv. ráðh., að í hinni formlegu kæru Framleiðsluráðs landbúnaðarins til Hallvarðs Einvarðssonar rannsóknarlögreglustjóra ríkisins, sem send var 28. nóv. s.l., kemur fram að Framleiðsluráð landbúnaðarins hafi upplýsingar um að á tímabilinu 1976 til 1980 hafi farið fram stórfellt misferli af þessu tagi í einu hóteli í Reykjavík með þeim hætti að hótelstjórinn hafði milligöngu með það að gjaldkeri (fjármálastjóri) hótelsins greiddi innflytjandanum fyrir hið smyglaða kjöt „nótulaust“ eins og komist var að orði.
Hafi hæstv. ráðh. jafnmikinn áhuga á þessu máli og ég getur hann væntanlega spurst fyrir um hjá Framleiðsluráði landbúnaðarins hvaða hótel kærusendandi eigi við í þessu formlega bréfi til rannsóknarlögreglustjóra ríkisins, Hallvarðs Einvarðssonar. Þar eru sérstaklega settar fram þær upplýsingar að eitt hótel í Reykjavík hafi á fjögurra ára tímabili gerst sekt um þetta misferli og því lýst nokkuð ítarlega með hvaða hætti það hafi gerst. Ég vænti þess að hæstv. ráðh. hafi nægilegan áhuga á málinu til að afla sér eintaks af þessu formlega bréfi Framleiðsluráðs landbúnaðarins til rannsóknarlögreglustjóra ríkisins og hafi einnig nægilegan áhuga til þess að spyrjast fyrir um það hjá kærusendendum hvaða hótel það er sem þeir eigi þar við. Ég vænti þess að hann fái þá sömu svör og ég. Þess vegna eru það ekki bara einhverjar sögusagnir hér í miðbænum eða annars staðar á almennum ferli manna, heldur hefur Framleiðsluráð landbúnaðarins í formlegri kæru lýst því yfir að það hafi vitneskju um eitt tiltekið hótel sem þetta gildi sérstaklega um. Þetta vildi ég að hér kæmi fram, herra forseti, að gefnu tilefni áskorana frá hæstv. ráðherra um að ég fyndi orðum mínum stað. Ég hef gert það með því að vitna í hina formlegu kæru frá Framleiðsluráði landbúnaðarins.
Að lokum. Þegar ég átti við eitt úthlaup skildi ég hæstv. ráðh. svo að það hefði verið á tímabilinu eftir að Gunnar Guðbjartsson f.h. Framleiðsluráðs landbúnaðarins sendi ráðh. í sept. sérstakt erindi og ósk um að ráðh. beitti sér fyrir ítarlegum rannsóknum á þessu máli. Mér var fyllilega kunnugt um að fyrr á þessu ári hefðu farið fram ýmsar athuganir á þessu máli og á s.l. ári. En ég átti við það, að frá septemberbyrjun, þegar hæstv. ráðh. fékk hin formlegu tilmæli um að beita sér sérstaklega í málinu, hefði aðeins orðið það eina úthlaup sem hæstv. ráðh. rakti áðan.