16.12.1983
Neðri deild: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1920 í B-deild Alþingistíðinda. (1645)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Þegar þetta frv. var hér til 1. umr. var eindregið mælst til þess bæði af forseta og ráðh. að greitt yrði fyrir því að þetta frv. færi til n. Á grundvelli þess samkomulags sem fram kom í umr., að ráðh. mundi hér í upphafi 2. umr. svara þeim ítarlegu spurningum sem til hans var beint frá fjölmörgum þm., urðum við margir við því að greiða fyrir því að málið færi til n. Nú hefur hæstv. ráðh. flutt hér langa ræðu, u.þ.b. þriggja kortera ræðu, sem að meginhluta var almennur rökstuðningur við frv. eins og það var lagt fram, og hugleiðingar því til stuðnings. En nánast í mjög litlu og ýmsum tilvikum alls ekkert svarað þeim ítarlegu, nákvæmu og skýru spurningum sem einstakir þm. lögðu fram við 1. umr.
Nú er það sjálfsagt ætlun hæstv. ráðh. og forseta hv. Nd. að greiða fyrir því einnig í dag að þetta frv. fái hér afgreiðslu. Heyrst hafa hugmyndir um að reynt yrði að ljúka afgreiðslu þessa máls í Nd. á þessum sólarhring. Það getur ekki gerst ef framkoma hæstv. ráðh. gagnvart skiljanlegum og eðlilegum óskum þm. um svör við spurningum er með þeim hætti sem hér hefur komið fram, að þeim sé ekki svarað nema að litlu eða engu, en í stað þess þulin almenn þula um röksemdir fyrir frv. eins og það er nú.
Hæstv. ráðh. sagði það í sinni framsöguræðu og endurtók það að þetta væri frv. hafið yfir flokkadrætti. Það ætti að leggja málið þannig fyrir að allir þm. gætu um það fjallað. Ég hef tekið undir það hvað eftir annað, en ítrekað það sem ég sagði við lok 1. umr., að forsenda þess væri þá sú að hæstv. ráðh. svaraði öllum þeim spurningum sem ég gæti talið hér upp og hann hefur ekki svarað. Ég ætla ekki að eyða tíma til þess hér og nú. Þess vegna er það ósk mín til hæstv. forseta að þessari umr. verði frestað svo að hæstv. ráðh. og stjórnendum mála hér í þinginu gefist tækifæri til að íhuga hvort það er ætlunin að halda þessu máti áfram hér í gegnum deildina án þess að hæstv. ráðh. geri minnstu tilraun til að svara meginhluta þessara spurninga. Ég held að það greiði ekki fyrir framgangi málsins hér að hæstv. ráðh. geri það. Þess vegna vil ég eindregið beina þeim tilmælum til ráðh. ef hann er tilbúinn að svara þeim hér að gera það. Þá getur umr. út af fyrir sig haldið áfram og ráðh. fengið orðið aftur og svarað þessum spurningum. En ef hann er ekki tilbúinn til þess hér og nú þá er óhjákvæmilegt að umr. sé frestað svo að við ýmsir, sem stuðluðum að því að frv. gæti farið til n. án frekari umr. um spurningarnar á sínum tíma, fáum tækifæri til að bera saman bækur okkar um það hvort við látum bjóða okkur svona vinnubrögð.