16.12.1983
Neðri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (1683)
Um þingsköp
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hér fyrr í kvöld óskaði ég eftir að hæstv. forseti beitti sér fyrir því að sjútvn. yrði kölluð saman undir 2. umr. til að fjalla um þær till. sem fram hafa komið eftir að n. skilaði áliti. Ég vil spyrja hæstv. forseta hvað hann hyggst fyrir um störf n. og framhald þessarar umr. Ég vil taka fram að ekkert samkomutag hefur verið gert við Alþb. um framvindu þessa þingmáls.
Þá vil ég í öðru lagi, herra forseti, inna eftir því hvenær er ætlun forseta Nd. að taka á dagskrá kjördæmamálið sem dreift var í dag — frv. sem flutt er af fjórum flokksformönnum. Nauðsynlegt er að það mál verði tekið fyrir fyrir hátíðar og vísað til n. Til þess að svo megi verða verður að kjósa sérstakar nefndir í báðum deildum þingsins til að fjalla um þetta mál. Skammt er nú eftir af þingtímanum og brýnt að fá um það upplýsingar hvað hæstv. forseti deildarinnar hyggst fyrir um framvindu máts þessa og fiskveiðimálsins sem hér hefur verið á dagskrá.