16.12.1983
Neðri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1960 í B-deild Alþingistíðinda. (1688)

Um þingsköp

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Mér er ljúft að skýra frá því að það hefur aldrei annað staðið til en að sjútvn. Nd. fjallaði um þessar brtt. Og það er rétt, sem komið hefur fram hjá forseta, að búið er að gera fleiri en eina tilraun til að koma þeim fundi á, en af ýmsum ástæðum hefur það ekki getað orðið. Hins vegar get ég skýrt frá því að búið er að boða þennan fund, sem menn bíða svo mjög eftir, og hann verður haldinn núna klukkan 12.