17.12.1983
Neðri deild: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2065 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Enn vil ég reyna að sýna í verki vilja minn til að létta á þingdeildinni um störf sín í þessu máli. Þar sem ég lít svo á að þessi grein till., sú 5., vísi til ákvæða í 10. gr., sem þegar hafa verið felld í atkvgr., þá held ég að hún sé einnig þar með fallin.