19.12.1983
Efri deild: 38. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2129 í B-deild Alþingistíðinda. (1821)
143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Kolbrún Jónsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál um þetta frv. í trausti þess að leitað verði eftir samkomulagi í sjútvn. þessarar hv. deildar. Það er ekki það breið gjá á milli stjórnar og stjórnarandstöðu í þessu efni að tímaskortur eigi að ráða mestu um hvort samkomulag verður eða ekki. Þetta er slíkt stórmál að tíminn er allt of naumur til þess að fastsetja kvótaskiptingu. Nægir að minna á umsögn Kristjáns Ragnarssonar, formanns LÍÚ, í Tímanum þriðjudaginn 8. nóv. s.l. Þar segir hann að tveir mánuðir séu of skammur tími til að setja fram fastmótaðar tillögur um kvótaskiptingu. En hvað má segja um 1–2 daga í hv. Ed. Alþingis?
Hv. Ed. Alþingi á að hafa 1–2 daga til að fjalla um þetta mál. Við sem fulltrúar fólksins í landinu getum ekki afsalað okkur þeim rétti að geta tekið afstöðu til þeirrar reiknireglu sem á endanum yrði fylgt um skiptingu kvóta milli skipa. Það koma mörg vafaatriði inn í dæmið þegar litið er á einstök skip. Þau hafa jafnvel gengið kaupum og sölum. Hafi duglegur skipstjóri keypt sér bát sem illa hefur gengið á undanförnum árum hefur hann keypt sér ólukkuna, þar með keypt sér minni aflakvóta sem mundi fylgja því skipi, en þveröfugt ef keypt hefur verið skip sem hefur fiskað undanfarin ár betur en önnur.
Í þessum hugmyndum er skipið orðið að aðalatriði eins og það sé óháð því hvernig skipinu hefur verið stjórnað og hverju velgengni þess er að þakka. Það veiðir ekkert skip án áhafnar. Það er því í mörg horn að líta þegar rætt er um kvótaskiptingu og getur komið misjafnlega niður á landshlutana og margir misrétti beittir. Það er því ekki neitt smámál sem við erum að tala um hér. Við getum jafnvel dæmt menn á hausinn, sem hafa staðið sig vel undanfarin ár, en lyft öðrum upp sem síst skyldi. Því er ekki hægt að ætla einum né neinum þm. að taka afstöðu til kvótaskiptingar á þessu stigi, þar sem við höfum ekki fengið neina reiknireglu eða neitt sem haldbært er í þessu efni. Ég verð að segja það sem mína skoðun að ég skil ekki hvers konar fljótaskrift á að verða á þessu máli núna fyrir jólahlé. Það hefur komið fram a.m.k. hjá ýmsum aðilum að reiknireglan verður ekki tilbúin fyrr en jafnvel um miðjan eða endaðan jan., svo að ef til þyrfti að koma að kalla þing saman fyrr í jan., þá fyndist mér það ekkert frágangsatriði. En mér finnst aðalatriðið að við fáum að sjá út í hvað er verið að ganga og fáum að segja okkar álit á því efni og skoða það betur. Í trausti þess að reynt verði að ræða þetta betur í n. þar sem ég á sæti ætla ég að láta máli mínu lokið að þessu sinni.