19.12.1983
Efri deild: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2134 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

142. mál, almannatryggingar

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Virðulegi forseti. Þetta mál er einfalt í sniðum. Það er um framlengingu á sjúkratryggingagjaldinu svonefnda. Hv. fjh.- og viðskn. Nd. mælti einróma með samþykkt þessa frv. og við í Ed.-nefndinni höfum skoðað málið og mælum með að frv. verði samþykkt, en einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.