19.12.1983
Neðri deild: 34. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (1867)

47. mál, frestun á greiðslum vegna verðtryggðra íbúðalána

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 273 um frv. til l. um heimild til að fresta greiðslum vegna verðtryggðra íbúðalána. Fjh.- og viðskn. Nd. hefur tekið þetta frv. til meðferðar og mælir með því að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir eftir afgreiðslu Ed. Undir þetta rita allir nm.