25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í B-deild Alþingistíðinda. (192)

452. mál, jafnréttislög

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. síðasti ræðumaður lét þess getið að það væri helst til mikill sparnaður að hafa 10 mál á einu þskj. eins og hér liggur frammi. Ég vil láta þess getið að ég hygg að það sé ekkert óvenjulegt í þessu efni. En ég er fús að athuga hvort hafa mætti minni ráðsíu á þessum sparsemdartímum sem við nú annars lifum.