19.12.1983
Neðri deild: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2237 í B-deild Alþingistíðinda. (1921)

161. mál, málefni aldraðra

Frsm. (Guðrún Helgadóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. við 161. mál þingsins á þskj. 243, frv. til l. um breytingu á lögum nr. 91 31. des. 1982, um málefni aldraðra.

Nefndin hefur fjallað um frv. og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess með breytingu sem skráð er hér á þskj. 296. Hefur áður verið gerð grein fyrir þeirri breytingu.

Nm. voru allir viðstaddir og standa einhuga að þessari brtt. í trausti þess að hv. heilbr.- og trn. Ed. láti þessa breytingu ekki tefja framgang frv. og reyni að afgreiða það fyrir þinglok.