20.12.1983
Efri deild: 42. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2245 í B-deild Alþingistíðinda. (1949)

166. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Hæstv. forseti. Hv. fjh.- og viðskn. Ed. hefur skoðað þetta mál. Nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt eins og það kom frá hv. Nd. Stjórnarandstöðuþm. skrifa undir nál. með fyrirvara.