20.12.1983
Neðri deild: 39. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2246 í B-deild Alþingistíðinda. (1959)

Þingfrestun

Forseti (Ingvar Gíslason):

Þar sem þetta er síðasti fundur deildarinnar fyrir jólahlé vil ég þakka hv. þdm. samstarf og samveru það sem af er þessu þingi. Ég þakka skrifstofustjóra og starfsliði þingsins öllu gott samstarf. Skrifurum deildarinnar þakka ég veitta aðstoð og varaforsetum þakka ég sérstaklega fyrir þá aðstoð sem þeir hafa veitt mér. Ég óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsæls nýárs. Margir eiga um langan veg að sækja til heimila sinna og þeim óska ég sérstaklega góðrar heimferðar og góðrar heimkomu, og ég vænti þess að við hittumst öll heil að loknu jólaleyfi.