20.12.1983
Sameinað þing: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2250 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil aðeins gera smáaths. vegna brtt. og nál. frá menntamálanefndum Alþingis. Ég sé að það hefur verið prentað sem nál. og brtt. frá samvinnunefnd menntamála. Sú nefnd er ekki til en embættismenn þingsins töldu að óþinglegt væri að kalla það svo að brtt. og álit væri frá menntamálanefndum Alþingis. Ég vil biðja hæstv. forseta að athuga-hvort þingsköp leyfi að þetta sé leiðrétt.