23.01.1984
Sameinað þing: 36. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2257 í B-deild Alþingistíðinda. (1988)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Hinn 9. janúar var gefið út svohljóðandi forsetabréf:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsrh, að Alþingi skuli koma saman til framahaldsfunda mánudaginn 23. jan. 1984, kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 9. janúar 1984.

Vigdís Finnbogadóttir.

Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþm. og starfsmönnum Alþingis öllum óska ég gleðilegs árs, þakka liðið ár. Ég býð menn velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá óska mína að störf Alþingis, okkar allra, megi verða landi og þjóð til blessunar.