24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2264 í B-deild Alþingistíðinda. (1997)

386. mál, útreikningur verðbóta

Viðskrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Ég vil aðeins segja það í framhaldi af þeim umr. sem hér hafa farið fram að ég mun skoða þetta mál í sambandi við væntanlega löggjöf um vaxtamál og taka þetta sérstaklega til athugunar. Síðan hefur Alþingi að sjálfsögðu tækifæri til þess að segja skoðanir sínar á því með hvaða hætti þm. teldu skynsamlegast að staðið í þessum efnum.