24.01.1984
Sameinað þing: 37. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2270 í B-deild Alþingistíðinda. (2006)
137. mál, heildarstefna í áfengismálum
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans svo langt sem þau náðu. Það er greinilegt að fyrir liggja nú tillögur, sem hin fjölmenna nefnd hefur lagt til að unnið yrði eftir, varðandi sérstakt átak í þessum efnum, sem vissulega er verðugt verkefni, og það verður að treysta því að hæstv. ríkisstj. fjalli um þetta mál í alvöru á þann hátt að afstaða verði til þess tekin hver þessara atriða skuli framkvæmd, hvað þeir telja sér fært að vinna að, því vissulega er málið vandasamt. Ég dreg ekkert úr því að þó að jafnfjölmenn nefnd og hér um ræðir hafi náð fullri samstöðu um margar tillögur er engu að síður erfitt að hrinda þeim í framkvæmd og þá alveg sérstaklega til þess að eitthvert gagn verði að þeim.
Það fer ekki hjá því að manni detti það í hug að það sem helst hefur heyrst frá hæstv. ríkisstj. í áfengismálunum er lítið annað en fréttir um einhvers konar umboðsmannasamkeppni í áfengissölu til ÁTVR, enda markaðshyggjan og frelsið samt við sig á þeim bæ og víða liggja hagsmunir sem hyggja þarf að og veita aðhlynningu. Ég veit að hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason hefur þar ekki um vélt, enda lýsti hann áður áliti sínu á þeim mönnum sem m.a. er að finna í umboðssölu áfengis þegar hann, með leyfi hæstv. forseta, nefndi slíka gróðaaðila einu nafni „gróðapunga“.
Ég vil trúa því að hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason og ekki síður hæstv. dómsmrh. Jón Helgason vilji sannarlega aðhafast eitthvað í kjölfar þeirra tillagna sem nefndin hefur sett fram. Þær úrbætur verða ekki auðveldar í framkvæmd því næg mun andstaðan verða.
Ég ítreka aðeins það sem ég sagði um álit færustu lækna á sambandinu milli fíkniefnanna og hinum stóra þætti áfengisins þar, þörf stefnumörkunar og þörf sérstaks átaks sem hér var rætt um af hæstv. ráðh. að nefndin hefði lagt til og er augljóst. Aðgerða er svo sannarlega þörf, því að þegar svo mikið er í húfi mega menn ekki fljóta sofandi að feigðarósi.