25.01.1984
Neðri deild: 40. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2343 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)

134. mál, alþjóðasamningar um varnir gegn mengun frá skipum

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Tilefni þess að þetta frv. var samið er þáltill. nr. 5 frá 1983, sem samþykkt var á Alþingi 1. mars á s.l. ári, um staðfestingu alþjóðasamnings um varnir gegn mengun frá skipum 1973 og bókunar 1978.

Frv. sama efnis var flutt á síðasta þingi í byrjun marsmánaðar en náði ekki að verða afgreitt sem lög á því þingi. Um ítarlega grg. er vísað til athugasemda við þáltill. og einnig athugasemda við þetta lagafrv.

Með þáltill. voru tvö fskj. Í fyrsta lagi alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum frá 1973 og bókanir varðandi hann frá árinu 1978. Þetta frv., ef að lögum verður, er hugsað sem heimild til þess að unnt sé að framfylgja samningnum frá 1973 um varnir gegn mengun frá skipum og bókunum frá 1978. Einnig er ætlunin að lögin geri kleift að staðfesta breytingar á samningnum svo og aðra samninga um sama efni er kunna að verða gerðir.

Í viðauka I við samninginn eru ítarlegar reglur um varnir gegn mengun frá skipum. Flestar þeirra snerta ekki íslenskan skipaflota nema að mjög litlu leyti. Rétt þykir að fara þá leið hér á landi að setja reglur um þau atriði sem geta varðað íslensk skip sérstaklega til þess að geta fylgt ákvæðum samningsins og bókunarinnar gagnvart erlendum skipum í íslenskri lögsögu. Þess má geta í þessu sambandi að í lögum nr. 41 frá 1. júní 1979 kemur fram að innan efnahagslögsögunnar hafi Ístand lögsögu að því er varðar verndun hafsins.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. samgn.