26.10.1983
Efri deild: 9. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (228)
8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Það hefði verið æskilegt að fá að tala svolítið langt mál í þessu máli. En eftir fundarsköpum er það víst ekki hægt. Þessi umr. bendir aðeins í eina átt. Svar við því hvað er að ske í íslenskum sjávarútvegi var okkur þm. Vesturl. gefið í viðtali við nokkra útvegsmenn á Akranesi nú fyrir stundu yfir í Þórshamri. Einn þeirra sagði þar: Verðtryggingin í sjávarútveginum hefur aldrei gengið upp. Það er raunverulega það sem er að ske að verðtryggingin í sjávarútveginum hefur aldrei gengið upp. Lánin hafa verið verðtryggð, það hafa verið lagðir á þau vextir, en það hefur ekki verið verðtryggt á móti. Aflinn, sem að landi hefur borist, hefur ekki verið verðtryggður. Ýmsir aðrir þættir hafa vitaskuld komið þarna inn en þetta er aðalatriðið. Til viðbótar er síðan Fiskveiðasjóður látinn leggja háa vexti ofan á sína verðtryggingu. Meginhluti þeirra lána sem íslenskur sjávarútvegur er með núna er dollaralán. Á síðasta ári hækkuðu þau lán í kringum100%. Ofan á þessi lán eru síðan lagðir 18–20% vextir, í sumum tilfellum a.m.k. Fyrst og fremst er það sú verðtrygging sem ríkið eða Alþingi hefur komið á í peningakerfinu sem er sökudólgurinn í því hvernig nú er orðið ástatt með íslenskan sjávarútveg.