13.02.1984
Sameinað þing: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2769 í B-deild Alþingistíðinda. (2384)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Þorsteinn Pálsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur yfirfarið kjörbréf Kristjönu Millu Thorsteinsson, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, og leggur til að kjörbréfið verði samþykkt.

Þá hefur nefndin einnig tekið til meðferðar kjörbréf Einars Kr. Guðfinnssonar, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi. Nefndin leggur einnig samhljóða til að kjörbréf hans verði samþykkt.