14.02.1984
Sameinað þing: 48. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2818 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)
419. mál, gæða- og öryggisreglur varðandi hjólbarða
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Ég vil upplýsa hæstv. dómsmrh. um að mál þetta var að sjálfsögðu afgreitt í allshn. Sþ. Málið var sent frá nefndinni til umsagnar Bifreiðaeftirlitsins svo að hæstv. dómsmrh. og rn. hans hefði hæglega getað fengið hana lánaða hjá hv. allshn. Sþ.