15.02.1984
Neðri deild: 47. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2884 í B-deild Alþingistíðinda. (2516)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins að það komi fram að nákvæmlega sams konar till. og hér er rætt um var flutt á síðasta Alþingi, þá m.a. með stuðningi þess alþm. sem nú situr í sæti hæstv. fjmrh. Mér kemur því ekki til hugar annað en að hann muni sjá til þess að framkvæmdin verði með þeim hætti sem hann sjálfur lagði til á s.l. vetri.