21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2998 í B-deild Alþingistíðinda. (2588)

171. mál, gjaldskrá fyrir uppboðshaldara

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég sagði að frv. mundi verða lagt hér fram á næstunni um þetta mál og ég geri ráð fyrir að það líði ekki margar vikur áður en það kemur á borð þm. Ég veit að hæstv. fjmrh. hefur fullan hug á að fá það afgreitt eins fljótt og þm. telja sér fært að gera.