21.02.1984
Sameinað þing: 53. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3009 í B-deild Alþingistíðinda. (2603)
421. mál, athvarf fyrir börn og unglinga sem neyta fíkniefna
Fyrirspyrjandi (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. heilbrrh. orð hans. Ég er sammála honum að við verðum að sjá vítt yfir vandamálið. Ég er líka fullviss um að vandamálið er flókið en ég vildi samt ítreka að það er rétt að við höfum haft það gott efnahagslega á síðari árum, miðað við fyrri tíð. En á sama tíma er alveg rétt hjá hæstv. heilbrrh. að aukist hefur framboð af þessum efnum. Þó að við höfum haft það slæmt áður höfðum við ekki þessi efni til að flýja til til að firra okkur þeim beiska raunveruleika sem við gátum ekki tekist á við. En í dag hafa börnin þau. Það er alveg rétt, það hafa verið meiri peningar milli handa fólks í seinni tíð, en til að afla peninganna hefur fólkið þurft að vinna mikið. Það hefur þurft að vinna svo mikið að samskipti við börnin og unglingana hafa verið vanrækt. Þess vegna er miklu meira rótleysi og brotnara fjölskyldumynstur í dag en áður var þegar efnahagur okkar var verri. Ég held að við megum ekki líta fram hjá þessu.
Ég vildi bara undirstrika að það er skylda okkar og ábyrgðarhluti að styrkja unglingana þannig að það sé sjálfstraust og sjálfsstjórn þeirra sem ræður því hvort þeir neyta vímuefna. Við getum ekki þurrkað burt vímuefni úr heiminum. Þau hafa alltaf verið til. Þau eru í jurtum sem vaxa í náttúrunni þannig að við getum ekki útilokað þau. Það sem við getum gert er að efla og styrkja sjálfstraust þeirra sem láta þau inn í líkama sinn. Þar getum við unnið saman.