22.02.1984
Neðri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3065 í B-deild Alþingistíðinda. (2678)

196. mál, lausaskuldir bænda

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það er rangt, sem kom fram áðan í ræðu hjá einum þm., að hér væri um að ræða einhverjar skuldir sem ríkissjóður Íslands ætti að borga. Þetta er alrangt. Ábyrgð á þessum skuldum ber Búnaðarbanki Íslands. Málefni hans eiga heima hjá landbn. Því segi ég já.