22.02.1984
Neðri deild: 50. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3101 í B-deild Alþingistíðinda. (2695)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Hæstv. heilbr. og trmrh. sagði rétt í þessu þegar síðasti ræðumaður var að fara úr ræðustólnum: Þú kannt ekki að skammast þín. Hæstv. ráðh. kann ekki að skammast sín. Maðurinn sem hefur skert kaupmátt ellilífeyris og örorkulífeyris um 1/4. Maðurinn sem hefur skilið 5 þús. manns sem eiga afkomu sína undir Tryggingastofnun ríkisins eftir með 8 þús. kr. á mánuði. Svo segir hann hér í ræðustólnum: Það er bara lygi, það er bara einhver tilbúningur úr þessum hrokagikki og monthana sem hér var í ræðustólnum.
Hæstv. ráðh. ætti að beina fsp. sínum til þeirra stofnana sem heyra undir hann. Hann ætti að taka eftir þeim opinberu gögnum sem þær stofnanir senda frá sér. Það liggur ljóst fyrir að skv. þeim gögnum sem þær stofnanir sem heyra undir ráðh. sendu frá sér fyrir tveimur mánuðum síðan voru tæplega 5 þús. manns sem höfðu 8 þús. kr. á mánuði til að lifa af og ekki meira. (Heilbr.- og trmrh.: Þetta er afrakstur þinna verka.) Það er afrakstur, þetta er afrakstur — (Heilbr.- og trmrh.: Allt saman þér að kenna.) Allt saman mér að kenna? (Gripið fram í.) Er þetta maðurinn sem áðan var að tala um kjark? Maðurinn sem þorir ekki einu sinni að kannast við brbl. Maðurinn sem þorir ekki að kannast við að hafa skorið kaupmáttinn niður, maðurinn sem þorir ekki að kannast við það að nú ber hann ábyrgð á því að það eru 5 þús. ellilífeyris- og örorkuþegar sem hafa 8 þús. kr. á mánuði? Hver var að tala um kjark fyrir nokkrum mínútum síðan? Þorir ráðh. ekki að kannast við sín eigin verk? Þorir hann ekki að lítast um í þjóðfélaginu og skoða hvað fólk hefur í raun og veru? (Heilbr.- og trmrh.: Að sjá þennan sperrilegg.) Sperrilegg, já, hæstv. ráðh. getur talað um mont, sperrilegg, hana og allt sem honum sýnist. En allt það orðfæri sem ráðh. æfði sig í í bæjarstjórninni á Ísafirði á árunum áður dugir honum ekki til að dylja þá staðreynd sem hér blasir við, að hann fyrstur allra heilbrrh. í röskan áratug ber ábyrgð á því að kjör ellilífeyrisþega og örorkulífeyrisþega eru nú komin á það stig sem þau voru á síðustu mánuðum viðreisnarstjórnarinnar þegar allir voru sammála um að þau væru svo óhæf að það var fyrsta verk vinstri stjórnarinnar sem þá tók við völdum að hækka elli- og örorkulífeyri.
Hæstv. ráðh. ætti að kalla til sín þær þúsundir sem muna þau þáttaskil og heyra hvað þær þúsundir sögðu um ráðherratíð Magnúsar Kjartanssonar og sögðu um þá ráðh. sem við tóku af honum og sem héldu, þrátt fyrir mikla efnahagserfiðleika, þeim kaupmætti hjá ellilífeyris- og örorkulífeyrisþegum að hann hrapaði ekki niður eins og hæstv. ráðh. ber nú ábyrgð á.
Svo kemur hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason hér og segir: Það þarf kjark, það þarf kjark, þið þorðuð ekki, þið þorðuð ekki. Þið vilduð ekki fara í ríkisstj. Það er alveg rétt. Við vildum ekki fara í ríkisstj. upp á þær kröfur Matthíasar Bjarnasonar og Sjálfstfl. að ráðast svo gegn fátæka fólkinu í landinu að það yrðu þúsundir sem hefðu ekki afgangs nema 1–2 þús. kr. til að greiða mat fyrir sig og börn sín og varla það.
Hæstv. ráðh. ætti að vita að mikill hluti þess fólks, sem ég nefndi áðan og hefur bara 8 þús. kr. á mánuði til að lifa af, þarf að greiða kannske 5–6 þús. kr. í húsaleigu á mánuði. Hvað á það þá afgangs, hæstv. ráðh.? Hvað ætli hæstv. ráðh. hafi á mánuði núna? Ætli það séu ekki rúmlega 60 þús. kr.? Það er ósköp skiljanlegt að þessir menn séu komnir úr tengslum við þúsundirnar í landinu sem hafa 8–11 þús. kr. á mánuði og halda að þetta fólk flykkist á veitingastaðina um helgar.
Þessi borg er full af einstæðum foreldrum sem hafa 10–13 þús. kr. á mánuði. Það hefur verið sagt af hæstv. forsrh. og formanni Sjálfstfl. að þær aðgerðir sem ríkisstj. hefur verið að tala um að gera í framhaldi af kjarasamningunum mundi breyta mjög kjörum þessa fólks. Hvað sagði formaður einstæðra foreldra í útvarpinu í kvöld? Froða, sagði formaður einstæðra foreldra, blaðamaður á Morgunblaðinu, um þessar aðgerðir ríkisstj. Froða, var hennar óbreytta orð og hún varaði einstæða foreldra í útvarpinu í kvöld við að trúa þessum blekkingum.
En það er ósköp eðlilegt að þessir menn haldi áfram sínu striki þegar hæstv. ráðh. afhjúpar það hér í ræðustólnum að hann heldur að þetta þjóðfélag sé fullt af fólki sem hefur svo rúm kjör að það geti leyft sér að vera á veitingahúsum um helgar. Veit hæstv. ráðh. hvar forsrh. er í kvöld? Hann er í veislu. Hann getur ekki verið hér í kvöld vegna þess að hann er í veislu. Hvers vegna er hæstv. ráðh. hér í hlutverki fjmrh.? Vegna þess að fjmrh. var erlendis, ekki í opinberum erindum, kannske veisluferðalagi. Hverjir eru það sem stunda veislurnar í þessu þjóðfélagi? Vill ekki hæstv. ráðh. koma með skrá yfir veislurnar í ráðherrabústaðnum sem hafa verið haldnar síðan þessi ríkisstj. tók við, t.d. veisluna sem hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. héldu fyrir frönsku þyrluumboðsmennina sem voru að koma hingað fyrir nokkrum mánuðum síðan og var boðið í sérstaka veislu í ráðherrabústaðnum. (Heilbr.- og trmrh.: Varstu undir borðinu þarna?) Nei, það fréttist nú ýmislegt sem þessir höfðingjar eru að hafast að. (SighB: Voru menn undir borðum þarna eða hvað?) Við skulum ekkert leiða neinum getum að því hvar menn hafi verið.
Þessi ræða hæstv. heilbr.- og trmrh. í kvöld verður lengi í minnum höfð. Þegar hæstv. ráðh. var spurður um kjör þúsundanna sem þurfa að framfleyta sér á lífeyrinum frá Tryggingastofnun, elli- og örorkulífeyrinum, voru svör ráðh. að veitingahúsin væru full af þessu fólki um helgar, það hefði nóga peninga. Það er merkileg sýn sem ráðh. hefur á þetta þjóðfélag. Þess vegna er kannske ekki að furða að hann ætli að halda áfram að skerða kjör þessa fólks á þessu ári og á næsta ári þegar hann lifir í þeirri blekkingu að veitingahúsin séu full af þessu fólki. Ætli það séu ekki frekar þeir sem eiga að greiða minni skatta skv. því frv. sem hér er til umr. sem sækja veitingahúsin um helgar heldur en öryrkjarnir og ellilífeyrisþegarnir?
Kannske er nauðsynlegt að forsvarsmenn ellilífeyrisþega og öryrkja í þessu landi bjóði hæstv. ráðh. í heimsókn til sín, bjóði hæstv. ráðh. að lifa af kjörum sínum í einn mánuð. Hvað ætli bensínið á Range Roverinn í einn mánuð kosti, hæstv. ráðh., þó hann sé gefins að hluta? Hvað ætli það kosti? Hvað ætli það séu mörg mánaðarlaun elli- og örorkulífeyrisþeganna sem hæstv. ráðh. hefur fengið í gjöf í afslættinum á Range Rovernum? Svo dirfist þessi ráðh. að koma hér og bera það á borð að örorku- og ellilífeyrisþegarnir stundi veitingahúsin um helgar vegna þess að þeir hafi svo mikið af peningum.
Herra forseti. Þessi umr. hefur orðið æði sérstök. Í henni hefur afhjúpast mjög rækilega viðhorf hæstv. ráðh. til fólksins í landinu. Hæstv. ráðh. neitar því að fátækt sé á Íslandi. Hann neitar því að hér sé fólk sem eigi erfitt með að hafa fyrir mat handa sér og börnum sínum. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort hann er reiðubúinn að koma með mér niður í Ísbjörninn og niður í BÚR t.d. á morgun og ræða við einstæðu mæðurnar sem vinna í pökkunarsalnum í þessum tveimur frystihúsum, leigja hér í borginni og þurfa að borga 6,7 eða 8 þús. kr. á mánuði í leigu, 1–2 þús. kr. í hita og rafmagn, hlusta á þær gera grein fyrir því hvað þær hafi afgangs í mat og föt handa börnum sínum.
Það er staðreynd að fjöldinn allur af einstæðum mæðrum vinnur í þessum tveimur frystihúsum sem eru svo aðkrepptar að þær hafa orðið að breyta allverulega neysluvenjum síns heimilis til þess að hafa fyrir einfaldasta mat handa sér og börnum sínum. Þær hafa orðið að hætta að veita börnum sínum þá ánægju að fara í kvikmyndahús eða leikhús. Þær hafa orðið að koma til fjölskyldu sinnar og biðja um afgangsföt til að eiga klæði handa börnum sínum.
Þetta getur ráðh. allt fengið að heyra ef hann er reiðubúinn að stíga aðeins út úr stjórnarráðinu og til fólksins í þessu landi og kynnast því hvað hér er að gerast, hverjar eru afleiðingarnar af þeirri stefnu sem hæstv. ráðh. hefur verið fenginn til að framkvæma.
Ég veit, af því ég þekki sögu hæstv. ráðh. vel, að ef hann opnaði augu sín og færi út á meðal fólksins mundi hann snúa við á þessari braut. Ræða hans í kvöld sýnir eingöngu að hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason veit ekki hvað hann er að gera. Hann veit ekki að það þjóðfélagsástand sem hann er hér að skapa er í hrópandi andstöðu við öll þau helstu lífsviðhorf sem hann hefur þó haldið fram, bæði hér á árum áður þegar hann starfaði í heimabæ okkar beggja, Ísafirði, og þegar hann á Alþingi hefur barist fyrir kjörum elli- og örorkulífeyrisþega. Kannske er það skýringin að hann og e.t.v. fleiri séu orðnir svo lokaðir inni í rangölum stjórnarráðsins, svo uppteknir við þennan dans í kringum embættismenn og aðra ráðherra, svo uppteknir af þessari hringiðu stjórnsýslunnar og veisluhaldanna sem tilheyra ráðherrastörfunum, að smátt og smátt hafi hann losnað úr tengslum við það fólk sem hann hefur þó oft áður talið að hann ætti fyrst og fremst að tryggja að hefði mannsæmandi kjör. (Heilbr.- og trmrh.: Ég stunda ekki veislur.) Nei, vel má vera að hæstv. ráðh. stundi ekki veislur. Ég treysti orðum hans alveg í þeim efnum. En ég ítreka af miklum alvöruþunga, hæstv. ráðh., að það eru ekki ýkjur, það er ekki einhver retorik í ræðustólum á Alþingi, lýsingin á þeirri fátækt sem er að verða í landinu.
Ég verð að segja af minni reynslu að það var ekki fyrr en um miðjan þennan vetur sem smátt og smátt fóru að koma í ljós þau skýru dæmi sem nú blasa við um það líf sem þessi stjórnarstefna hefur boðið fjölda fólks. Ég á þá ósk í garð hæstv. ráðh., sem ber sérstaka ábyrgð gagnvart elli- og örorkulífeyrisþegum, að hann gefi sér nú tíma til að skoða rólega hvað er að gerast, hvað hefur gerst og hvernig ástandið er orðið.
Í þessum umr. hafa þær lýsingar sem hv. þm. Þorsteinn Pálsson og hv. 1. þm. Vestf. gáfu til að réttlæta þetta frv. verið bornar saman við raunverulegt ástand í efnahagsmálum þjóðarinnar og stefnu ríkisstj. á öðrum sviðum. Því hefur verið lýst hér mjög rækilega að þessi ríkisstj. kappkostar að taka til ríkisins sífellt meira og meira fjármagn frá atvinnuvegunum og þeim viðskiptabönkum sem þjóna atvinnuvegunum. Þessi ríkisstj. hefur búið til sérstök ríkisbréf með gæðakjörum í þessu skyni. Hún er þessa dagana að finna upp sérstaka ríkisvíxla í þessu skyni og hún hefur hafið sérstök ríkisafskipti af lífeyrissjóðunum einnig í þessu skyni. (SighB: Og gengistryggð skuldabréf.) Þessu hefur ekki verið mótmælt enn í þessum umr. enda er það ekki hægt. Þessir trúmenn, sem hv. þm. Svavar Gestsson lýsti svo vel fyrr í umr., verða að reyna að horfast í augu við þennan veruleika einnig. (Gripið fram í.) Því hefur einnig verið lýst í umr. hvernig þetta frv. er fyrst og fremst í þágu skattfríðinda hinna efnameiri, hinna fjármagnssterku. Hvernig það gengur í raun og veru þvert á þá stefnu að gefa æ fleirum tækifæri til að taka á lýðræðislegan hátt þátt í mótun atvinnulífsins. Þetta er skattafrv. fyrir hina fjársterku í atvinnulífinu. Þetta er skattafrv. fyrir eignamennina í atvinnulífinu.
Það vekur vissulega athygli að hv. þm. Þorsteinn Pálsson, nýkjörinn formaður Sjálfstfl., hefur enn á ný haft þann hátt á í þessum umr. að koma og flytja almenna slagorðaræðu um þau viðhorf sem eiga að liggja að baki þessu frv. Þegar sýnt er fram á með málefnalegum rökum og fjölda dæma að veruleikinn er allur annar en málflutningur hans gaf til kynna ríkir þögn. Það vekur vissulega athygli að þessi nýkjörni þm. Sjálfstfl. og formaður hans treystir sér ekki til, hvað eftir annað á Alþingi, að fylgja eftir í málefnalegum umr. þeim sjónarmiðum sem hann hefur sett fram. Hann hörfar. Hann hættir við. Hann þegir. Það er vissulega mikil breyting frá því sem áður var varðandi Sjálfstfl. Geir Hallgrímsson hafði þó manndóm í sér við og við til að halda rökræðu sinni til streitu, flutti stundum mjög langar ræður á Alþingi af því tilefni, stundum dálítið leiðinlegar, en látum það vera. Það var þó tilraun af hálfu þáv. formanns Sjálfstfl. til að halda sínum sjónarmiðum til streitu á þinginu og taka þátt í rökræðum um málin. En núv. hv. þm. Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstfl., hörfar, hættir og þegir.
Hv. þm. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstfl., sést hér við og við í mýflugumynd. Það er þá helst að hann taki til máls þegar hann er að reyna að leiðrétta hæstv. fjmrh. Annars tekur hann ekki mikinn þátt í umr. Eins ætlar það greinilega að vera hér og nú, að hv. þm. Þorsteinn Pálsson flytur almenna slagorðaræðu um frv., en þegar hver þm. á fætur öðrum gerir veigamiklar athugasemdir og gagnrýnir hans málflutning er engu svarað. (FrS: Gengur framsóknarmaður í salinn. Ég vek athygli á því.) Já, rétt er að vekja athygli á því að það kemur framsóknarmaður í salinn. (ÓÞÞ: Ég fór úr húsinu kl. 6, þá var hann enn þá í stólnum.) Hins vegar er rétt að vekja athygli á því að hæstv. forseti þessarar deildar er einnig framsóknarmaður og stýrir fundum mjög svo vel þannig að við höfum ekkert saknað hinna neitt sérstaklega.
Herra forseti. Ekki er mikil ástæða til að ræða þetta mál miklu lengur fyrst þeir sem hér hafa talað, sá sem nú situr í sæti 1. þm. Vestf. og einnig formaður Sjálfstfl. Þorsteinn Pálsson, leggja ekki út í að halda áfram rökræðum um frv.
Ég vil svo að lokum, herra forseti, ítreka þá ósk til hæstv. heilbr.- og trmrh. að hann gefi sér á næstu vikum tíma til að kynnast kjörum fólksins í þessu landi. Vonandi gerist það aldrei aftur í þingsögunni að sá maður sem ber ábyrgð á kjörum elli- og örorkulífeyrisþega svari með skætingi á þingi þegar talað er um fátækt þessa fólks, að það hafi næga peninga enda sé það á troðfullum veitingahúsum um allar helgar.