28.02.1984
Sameinað þing: 58. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3216 í B-deild Alþingistíðinda. (2775)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 28. febr. 1984. Ragnhildur Helgadóttir, 10. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég verð á næstunni erlendis í embættiserindum leyfi ég mér að óska þess, að 1. varaþm. Sjálfstfl. í Reykjavík, Guðmundur H. Garðarsson, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Ingvar Gíslason,

forseti Nd.

Guðmundur H. Garðarsson hefur setið áður á þessu þingi og býð ég hann velkominn á ný til starfa.