31.10.1983
Sameinað þing: 10. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. okt. 1983.

Tómas Árnason, 4. þm. Austurl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jón Kristjánsson félagsmálafulltrúi á Egilsstöðum, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að fram fari í sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns. Salome Þorkelsdóttir, forseti Ed.“ Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréf Jóns Kristjánssonar til athugunar. Verður gefið fundarhlé á meðan í 5 mínútur. Fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]