06.03.1984
Sameinað þing: 62. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3424 í B-deild Alþingistíðinda. (2959)
189. mál, fríiðnaðarsvæði við Keflavíkurflugvöll
Flm. (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég kem nú hingað í ræðustólinn eingöngu vegna þess að mér fannst hv. þm. Kristín Halldórsdóttir vera með fullmiklar úrtölur í þessu máli. Í þessari till. er lagt til að kanna málið og ég legg á það mikla áherslu að það verði gert. Við getum rifist um það seinna . . . (KH: Ég var ekkert að rífast.) Nei, þú varst ekki að rífast, en hjá þér kom fram nokkur bölsýni fannst mér.
Við getum deilt um það seinna hvort þetta er hagkvæmt eða ekki, en til þess að vita eitthvað um málið þarf að kanna það. Og fólkið suður á Suðurnesjum, atvinnulaust fólk, hrópar á úrræði og nýjar leiðir. Þetta gæti verið leið til að bjarga mörgum atvinnulausum manninum. Þetta hefur verið reynt annars staðar og það hefur gefist vel, ekki aðeins vegna þess að það hefur flutt mikla tækniþekkingu til þeirra staða þar sem þetta hefur verið gert, heldur líka skapað mikla vinnu. Þarna er verið að tala um að laða að fyrirtæki og starfsemi sem annars eru ekki fyrir hendi. Það ætti þess vegna ekki að verða öðrum til tjóns.
Auðvitað er það svo að ef hagkvæmt er að gera þetta er ástæða til að skoða líka hvort ekki er hægt að gera þetta annars staðar en einmitt á þessu svæði. En mér sýnist sem aðstæður séu hvað bestar þarna á Keflavíkurflugvelli eða í Straumsvík því það gæti komið upp sú staða að þessi herstöð, sem nú er, yrði þar ekki lengur. Þá yrði mikill fjöldi bygginga, flugvöllur og hvers konar aðstaða ónýtt.
Það kynni þá einhver að spyrja: Hvers vegna voru þessar úrtöluraddir á Alþingi á sínum tíma? Hvers vegna var ekki mátið skoðað? Hvers vegna var það ekki kannað? Hvers vegna eigum við að vera eins og nátttröll? Hvers vegna höfum við verið eins og nátttröll? yrði kannske spurt. Ég ítreka að hér er aðeins talað um könnun á þessu stigi og ég tel nauðsynlegt að hún fari fram til þess að við getum skorið úr um hvort af þessu gæti orðið.
Ég tel vera mjög einfalda skýringu á að till. hefur ekki verið samþykkt enn þá. Við sem höfum borið hana fram höfum verið í stjórnarandstöðu lengi. Hv. þm. þekkir það kannske að mál þeirra sem eru í stjórnarandstöðu hljóta ekki jafngreiða umfjöllun og annarra. Stundum kemur það þó fyrir. Ég vænti þess að hér verði þessi till. afgreidd og samþykkt, enda veit ég að það er fjöldinn allur af þm. sem gerir sér ljóst að við munum einhvern tíma þurfa að ásaka okkur fyrir að hafa verið eins og nátttröll í atvinnumálum.