12.03.1984
Neðri deild: 56. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3656 í B-deild Alþingistíðinda. (3056)

155. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (Ingvar Gíslason):

Vegna orða hv. þm. vill forseti taka fram að hann getur ekki knúið einn eða neinn til umr. hér í hv. Alþingi. En með gleði skal ég gefa hverjum þeim orðið sem vill halda áfram umr. um þetta mál. En nú eru ekki fleiri á mælendaskrá og þessari umr. er því lokið.