13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3685 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)
185. mál, greiðslur ríkisfyrirtækja til Vinnuveitendasambandsins
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Þessi umr. hefur að mörgu leyti verið mjög upplýsandi og jafnvel fyrir sumra hluta sakir skemmtileg. Mér finnst eins og menn — og þá á ég við alla þátttakendur — hafi að einhverju leyti talað dálítið í kringum þau aðalatriði sem raunverulega eru hér til umr. Allavega verður mjög erfitt í framtíðinni að hlusta á eða trúa því þegar aðilar úr núverandi stjórnarflokkum fara að tala um frjálsa samninga því að sú gerð sem hér er verið að framkvæma er alveg þvert á anda hinnar frjálsu samningshugsunar. Það að gera ríkið aðila að vinnuveitendasambandi og taka þannig í raun og veru eindregna afstöðu með öðrum samningsaðilanum á vinnumarkaðinum gerir það að verkum að alls ekki er hægt að trúa orðum þeirra manna sem síðan tala um frjálsa samninga sem sitt hugsjónamál.
Reyndar fer ekki hjá því að sú hugsun komi upp í koll manns hvort hér sé jafnvel ekki á ferðinni eitthvað enn þá verra, hvort þessir kerfisflokkar eru jafnvel ekki að ganga svo langt með áframhaldandi inngöngu ríkisfyrirtækja í Vinnuveitendasamband Íslands að við stöndum uppi með það að ríkisstjórn Íslands verði búin að þjóðnýta Vinnuveitendasambandið. Þá er þessi aðgerð náttúrlega orðin fullkomin.