13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3694 í B-deild Alþingistíðinda. (3117)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það eru nokkrir enn á mælendaskrá. Ég vil taka það fram að þessum fundi verður slitið ekki síðar en eftir hálftíma, hvort sem fleiri eða færri eru þá á mælendaskrá. Ég hygg að það væri sæmst fyrir okkur ef við gætum lokið þessari umr. innan þess tíma. Það má vel vera ef menn halda sér við þingsköp.