13.03.1984
Sameinað þing: 64. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3695 í B-deild Alþingistíðinda. (3119)

Um þingsköp

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Það skal tekið fram að ekki hefur verið upp tekin nein ný þingvenja að þessu leyti. Um þetta er ekkert að segja annað en það, sem við getum sagt með vissu, að ef þm. er fjarverandi þá er hann ekki til staðar til þess að standa fyrir fsp.