14.03.1984
Neðri deild: 57. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3765 í B-deild Alþingistíðinda. (3175)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ekki er hægt að ljúka þessari umr. svona. Hér voru bornar fram margar spurningar til hæstv. ráðh., fjmrh., iðnrh. og félmrh., og það verður að óska eftir því að þeir svari þessum spurningum, annaðhvort núna eða að fram komi að ætlunin sé að það verði gert við upphaf 3. umr.