15.03.1984
Sameinað þing: 66. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3787 í B-deild Alþingistíðinda. (3209)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Hér kom fram till. um að vísa þessu máli aftur til n. Tel ég slíkt öldungis óþarft og hafði raunar hugsað mér að flytja skriflega brtt. um það efni sem hæstv. iðnrh. taldi að vantaði inn í till. Nú hefur forseti frestað umr. Við því er ekkert að segja. Ég geri engar athugasemdir við það. En ég mun flytja mína brtt. þegar málið verður tekið til umr. á næsta fundi Sþ.