19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3812 í B-deild Alþingistíðinda. (3244)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Forseti (Ingvar Gíslason):
Áður en lengra verður haldið vil ég minna hv. þdm. á brtt. frá Jóhönnu Sigurðardóttur og Guðrúnu Helgadóttur á þskj. 460. Sú brtt. er skv. þingsköpum komin of seint fram og þarf þá afbrigði við til þess að hún megi koma hér til umr. Ég ber það þá upp hvort þd. samþykki ekki að brtt. verði tekin fyrir.