19.03.1984
Neðri deild: 59. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3860 í B-deild Alþingistíðinda. (3272)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Eins og áður hefur komið fram í dag vil ég samt enn vekja athygli manna á því að hér er ríkið að draga sér fé sem á að renna í Framkvæmdasjóð fatlaðra og ekki er af fjárlögum heldur er þetta fé sem átti að vera markaður tekjustofn til uppbyggingar stofnana fatlaðra af öllu tagi, notað til að stoppa í göt fjárlaga ríkisstj. Því er ég andvíg og ég segi já.