20.03.1984
Sameinað þing: 67. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 3892 í B-deild Alþingistíðinda. (3317)

224. mál, ráðstöfun gegnismunar

Árni Johnsen:

Herra forseti. Ég vil fagna því að búið er að ákveða skipun nefndar sem fjallar um öryggismál sjómanna með þeim hætti sem hæstv. samgrh. hefur greint frá. En ég tel rétt að hér komi fram að hugmynd um þessa nefnd var reifuð við samgrh. fyrir utan dagskrárumr. sem hér er bent á og ráðh. tók vel í hana. Ég gat hins vegar ekki verið viðstaddur umr. en málið var tekið upp strax daginn eftir. Ég endurtek að ég fagna því að þetta mál er komið á rekspöl.