01.11.1983
Sameinað þing: 12. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (369)

Umræður utan dagskrár

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Í fjarveru menntmrh. vil ég lýsa því yfir, að ég mun koma þessum ábendingum til hæstv. menntmrh. eða beint til Ríkisútvarpsins og leggja á það áherslu að ríkisfjölmiðlar fari að settum reglum. Ég hef engu við það að bæta sem hv. þm. sagði en vil nota tækifærið og votta aðstandendum samúð mína vegna þessa hörmulega slyss. Og mér finnst satt að segja ástæða til að biðjast afsökunar á slíkum fréttaflutningi.