04.04.1984
Efri deild: 77. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4450 í B-deild Alþingistíðinda. (3790)
222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins
Árni Johnsen:
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða ákvæði til bráðabirgða til eins árs vegna aðstæðna í þjóðfélaginu, ákvæði sem að mínu mati er meingallað. En í trausti. þess að þessi mál verði endurskoðuð og Aflatryggingasjóði tryggður eðlilegur grundvöllur ekki síðar en í árslok segi ég já.