06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4532 í B-deild Alþingistíðinda. (3867)

222. mál, Aflatryggingasjóður sjávarútvegsins

Forseti (Birgir Ísl. Gunnarsson):

Það hefur verið gert ráð fyrir að fundur í dag standi ekki öllu lengur en til kl. 4 og allmargir þm. hafa við það miðað. Þess vegna tel ég rétt að halda þessari umr. áfram. Það fer að sjálfsögðu eftir því hvernig umr. standa þegar að fundarlokum kemur hvort rétt er að fresta umr. eða ekki. En ég tel eðlilegt að umr. haldi nú áfram.