06.04.1984
Neðri deild: 71. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4534 í B-deild Alþingistíðinda. (3877)
119. mál, tollskrá
Frsm. (Guðmundur Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá fjh.- og viðskn. Nd. á þskj. 564, þ. e. frv. til l. um breyt. á lögum nr. 120 frá 1976, um tollskrá o. fl. Nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir með að það verði samþykkt óbreytt.
Hinn 15. mars s. l. samþykkti Alþingi till. til þál. um staðfestingu Flórens-sáttmála. Í þessu frv. er að finna breytingar á tollskrá sem þál. gerir m. a. ráð fyrir.
Guðrún Agnarsdóttir, alþm. Kvennalista, er samþykk afgreiðslu nefndarinnar.“
Undir nál. rita hv. þm. Páll Pétursson, Guðmundur Einarsson, Þorsteinn Pálsson, Jón Magnússon, Svavar Gestsson, Kjartan Jóhannsson og Halldór Blöndal. Þál. sem hér er vísað til um staðfestingu Flórenssáttmála hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að staðfesta aðild Íslands að alþjóðasáttmála um niðurfellingu aðflutningsgjalda á varningi til mennta-, vísinda- og menningarmála, svonefndum Flórens-sáttmála UNESCO, en án viðaukabókunar sáttmálans. Jafnframt þessu verði gerðar nauðsynlegar breytingar á lögum um tollskrá.
Frv. sem hér um ræðir tekur til þeirra breytinga sem varða gjöld af vísindatækjum og búnaði sem ætlaður er til notkunar hjá viðurkenndum rannsóknaraðilum. Nefndinni barst umsögn um málið frá framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs ríkisins, sem lýkur með þeim orðum að „nefndin“ — þ. e. framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs — „leggur eindregið til að frv. verði að lögum á yfirstandandi þingi.“
Flm. þessa frv. munu í áframhaldi af þessu hyggja að frekari lagabreytingum sem eru nauðsynlegar til að staðið sé við markmið þál. í heild.