09.04.1984
Efri deild: 78. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4549 í B-deild Alþingistíðinda. (3911)
294. mál, Framleiðsluráð landbúnaðarins
Flm.(Stefán Benediktsson):
Virðulegi forseti. Á þskj. 572 flyt ég frv. til l. um breytingu á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o. fl., nr. 95 frá 1981. Þetta er hvorki stórt mál né merkilegt. Hér er eingöngu um að ræða að kippa í lag smágalla í gildandi lögum sem ég trúi varla að hafi í raun og veru verið vísvitandi. Í svörum hæstv. viðskrh. við fsp. frá Birgi Ísl. Gunnarssyni á þskj. 441 kom í ljós að reiknuð er 2% söluþóknun af óniðurgreiddu heildsöluverði útfluttra landbúnaðarafurða. Ég hjó ekki eftir þessu fyrr en eftir á og við frekari umhugsun varð þetta frumvarpskorn mitt til. Í grg., sem er nú líklega ekki sú lengsta sem þm. hafa séð hér á þingi, tel ég einfaldlega með öllu óverjandi að sölulaun einnar eða annarrar vörutegundar séu tekin af öðru en söluverðmæti þess varnings sem verið er að versla með og ótækt að þau séu tekin af óniðurgreiddu heildsöluverði eins og gert er í þessu tilviki í dag.
Ég legg til að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.