11.04.1984
Efri deild: 79. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4620 í B-deild Alþingistíðinda. (3996)
182. mál, umferðarlög
Valdimar Indriðason:
Virðulegi forseti. Eins og kom fram hjá hv. frsm. n. skrifaði ég undir nál. með fyrirvara. Þarna er þó ekki um að ræða alvarlegan fyrirvara af minni hálfu. Ég er í meginefni sammála þessu frv. hvað viðkemur skólaakstrinum og öryggisreglum við hann og annað slíkt. Það sem ég er ekki sammála öðrum nm. um er í sambandi við ljósatíma.
Mér er sagt að endurskoðun á umferðarlögum standi yfir og sé búin að standa alllengi yfir. Kannske kemur eitthvað nýtt fram í þessum efnum við þá endurskoðun sem við erum nú að leggja til að breytt verði en það liggur ekki fyrir í dag. Það sem ég finn að þessu, eins og ég sagði, er það að fara að skylda alla til þess að hafa ljós á bifreiðum sínum allt árið um kring. Ég er ákaflega mótfallinn því að við setjum þau lög og reglur, sem ekki eru haldin. Ég er nærri því viss um að yfir hásumarið, a. m. k. í þéttbýlinu, verður það þverbrotið að ekið verði með ljósum allan sólarhringinn á sólskinsdögum, sem við vonandi fáum fleiri í sumar en í fyrrasumar. Persónulega finnst mér það truflandi í umferð og ég ítreka það að ég er á móti því að við setjum of mikið af reglum sem eru brotnar. Ég óttast það mjög að löggjafinn geti ekki haft það eftirlit með þessu sem skyldi. Hins vegar verður auðvitað eins og alltaf áður að miða akstur við aðstæður og án vafa verður áfram kveikt á ljósum úti á rykugum vegum og í dumbungi og þoku og súld, eins og fram kemur líka í núverandi umferðarlögum. En ég vara við því að það verði tekið svona beinskeytt upp alveg ákveðið allt árið. Þess vegna legg ég til að við höfum þetta til málamiðlunar á þann veg núna að ljósaskylda verði ekki nema á meðan skólatími stendur yfir. Það er fjallað um skólabifreiðar og öryggi skólabarna hér á öðrum stað í frv. Því er ég sammála, en þar þarf að fara gætilega líka. Ég legg því til að ljósaskylda á ökutækjum hjá okkur verði ekki nema við sérstakar aðstæður tímabilið 15. maí til 1. september. Annan tíma sé þá skylda að hafa ökuljós.
Vegna tímaskorts er ég hér með skriflega brtt. Það mun reyna á það hvort hún hefur fylgi hér í hv. deild eða ekki. Ég geri það að till. minni að niðurlag 2. gr. gildandi umferðarlaga orðist svo:
„Ljósatími: Tíminn frá hálfri klukkustund eftir sólarlag til hálfrar klukkustundar fyrir sólarupprás frá 15. maí til 1. september. Annan árstíma svo og í þoku og við önnur svipuð birtuskilyrði, skulu ljós ökutækja ávallt tendruð í akstri.“
Með þessari breytingu er fellt inn í núverandi lög tímabilið 15. maí til 1. september, sem ljósaskylda er ekki á, ef svo má segja. Á öðrum árstíma sé ljósaskylda á öllum ökutækjum og auðvitað áfram eins og verið hefur við slæm akstursskilyrði.
Hæstv. forseti. Ég legg þetta fram hér á þennan veg. Ég veit ekki hvort þetta er fullnægjandi, en ég hafði ekki önnur ráð til að koma brtt. á framfæri við þessa umr.