07.11.1983
Sameinað þing: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (427)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„7. nóv. 1983.

Jón Helgason landbrh. hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og verð fjarverandi næstu vikur leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Guðmundur Búason kaupfélagsstjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Tekið skal fram að Böðvar Bragason, 1. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, er nú fulltrúi Íslands á fundi Sameinuðu þjóðanna í New York.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Salome Þorkelsdóttir.

forseti Ed."

Hér liggur fyrir svohljóðandi símskeyti:

„New York, 2. nóv. 1983.

Til forseta Sþ.

Þar sem ég dvelst erlendis um þessar mundir get ég ekki tekið sæti á Alþingi sem varamaður þm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi og óska því eftir að 2. varamaður taki sæti í minn stað.

Böðvar Bragason.“

Ég vil biðja hv. kjörbréfanefnd að rannsaka kjörbréf Guðmundar Búasonar sem hér liggur fyrir. Verður gefið fundarhlé í 5 mínútur á meðan. Fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]