07.11.1983
Sameinað þing: 14. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (428)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf fyrir Guðmund Búason. sem er 2. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi. Þess er óskað að hann taki nú sæti á Alþingi í forföllum þm.

Fyrir liggur tilkynning frá 1. varaþm. flokksins í kjördæminu að hann geti ekki sest á þing nú vegna dvalar erlendis.

Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neitt athugavert við kjörbréf Guðmundar Búasonar og leggur til að það verði samþykkt.