30.04.1984
Neðri deild: 77. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 4983 í B-deild Alþingistíðinda. (4412)

273. mál, ónæmisaðgerðir

Frsm. (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Þetta frv. er einnig komið frá Ed. og fór í gegnum Ed. án þess að nokkrar breytingar væru gerðar á því. Það var hins vegar vandlega skoðað og fengnir aðilar til þess að meta áhrif þess. Nauðsynlegt er að koma þessum breytingum fram og eftir að hafa skoðað málið mælir heilbr.- og trn. Nd. með að frv. verði samþykkt óbreytt.